Mörgum þykja ilmirnir AMOR AMOR frá Cacharel æðislegir. Það hafa verið gefnar út nokkrar mismunandi útgáfur af ilminum og sem hafa allar notið mikilla vinsælda.
Ilmurinn Forbidden Kiss eða Forboðni Kossinn er enginn undartekning, en ilmnóturnar sem í honum er að finna eru meðal annars mandarína, hvít bóndarós, sedrusviður, bleikur pipar, kaffi, hvítt musk, greipaldin, frangipani blóm og síðast en ekki síst… svört vanilla!
Ekki skemmir fyrir að flaskan er falleg og örlítið dularfull. Aðdáendur Amor Amor ilmanna ættu að koma við í næsta apóteki og fá að prófa Forbidden Kiss. Frábær lykt fyrir til dæmis ungu stelpurnar… eða þær sem eru smá villtar.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=ic4tiS8coog[/youtube]