Nýjasta viðbótin frá Gosh í snyrtivörusafnið mitt er sumarlegt og fallega bleikt naglalakk. Liturinn sem heitir Sweet Rose (nr.589) er fölfjólublár.
Litur sem er mjög mikið inn núna í vor og sumar. Ég hef alltaf verið mjög mikið fyrir fjólublá naglalökk, bæði ljós og dökk.
Lakkið er gott í alla staði. Það eina sem ég gæti sett útá lökkin hjá GOSH er að maður þarf að gera að minnsta kosti tvær umferðir til að ná rétta litnum – en það er ekki stórmál því liturinn helst nokkuð vel á. Í nokkra daga helst lakkið eins og það á að vera áður en það byrjar að flagna af.
Nú fer að styttast í sumarið og því um að gera að bæta smá lit í snyrtibudduna! GOSH glösin eru frekar stór og á mjög viðráðanlegu verði þannig að þú verður ekki svikinn 😉
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.