Ertu ein af þeim sem ert í stöðugri báráttu við augnhárin, þau eru bara ekki nógu löng, né þykk?
The eyeLASH booster inniheldur keratín sem byggir upp og styrkir augnhárin.
Þetta gæti ekki verið auðveldara – þú einfaldlega berð efnið á efri augnhár á hverju kvöldi, alveg við augnhárin eins og þú værir að nota fljótandi eyeliner. Svo kyssirðu bangsann þinn og ferð að sofa.
Mundu bara að þrífa áður allan augnfarða, áður en efnið er borið á.
Efnið í eyeLash Boosternum ertir augun ekki og hentar því einnig þeim sem eru með viðkvæma húð, eða nota linsur.
Niðurstaðan varð augljós: Þykkari lengri og heilbrigðari augnhár eftir mánaðar notkun!
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.