Mér finnst naglalökkin frá Depend algjör snilld. Þau eru í svo passlegum stærðum og eru á mjög góðu verði.
Lökkin kosta á milli 350- 399kr. misjafnt eftir verslunum. Depend fæst í nánast öllum apótekum og Hagkaupsbúðum.
Ég fann mér eitt naglalakk frá Depend í gær og mér fannst það svo fallega dúkkulísu-bleikt.
Liturinn er númer 29. Rétti liturinn næst með því að setja tvær umferðir og þá verður áferðin líka mikið fallegri.