Biotherm hefur sett á markað krem sem er sérstaklega hannað fyrir svæði sem skortir stinnleika, svæði sem eru viðkvæm fyrir appelsínuhúð og til þess að minnka ummál á t.d. mitti.
Celluli Laser Size.Code kemur úr línu vara sem allar virka á svipaðan hátt en eru notaðar á mismunandi tímum, eins og skrúbb, næturkrem o.fl.
Við könnumst margar ef ekki allar við að fá hina þrálátu appelsínuhúð og þær sem hafa gengið í gegnum barnsburð eða lést töluvert á skömmum tíma vita einnig að stundum verður húðin ekki eins stinn eftir á. Það sem mér finnst heillandi við kremið frá Biotherm er að það er fljótvirkandi og það er ekki endilega bundið við eitt líkamssvæði.
Gerð var könnun á kreminu og 94% kvenna sem tóku þátt sögðust sjá mikinn mun á appelsínuhúð eftir 4 vikna notkun á meðan 85% sögðust finna að hún hefði grenilega minnkað ásamt því að húðin væri mun mýkri og stinnari.
Kremið inniheldur Yeast Extract sem örvar collagen framleiðslu og endurnýjun ysta húðlagsins á meðan það gerir húðina einstaklega mjúka. Einnig eru í því innihaldsefni sem örva fitubrennslu og minnka fitufrumur umtalsvert.
Celluli Laser Size.Code hefur fengið frábæra dóma, meðal annars hjá Marie Claire en tímaritið setti það í fyrsta sæti hjá sér yfir “Best Aqua beauty buys”.
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com