Það er aldeilis óspennandi en jafnframt fyndið nafnið á þessu ótrúlega glæsilega naglalakki frá Gosh…
….Nafnið er Miss Mole # 596, eða Fröken Varta, jáhá.
Naglalakkið er mjög fallegur brúnn litur sem að hefur greinilega minnt einhvern á vörtu. Brún naglalökk hafa verið einstaklega vinsæl undanfarið og finnst mér þetta lakk frá Gosh eitt það flottasta brúna sem ég hef séð. Liturinn passar vel við öll tilefni og er, eins og áður sagði, mjög glæsilegur og ætti að henta konum á öllum aldri.
Eins og alltaf með lökkin frá Gosh þá þekja þau mjög vel svo að ein umferð er alveg nóg og svo glansa þau eins og enginn sé morgundagurinn.
Þessi flotti litur kemur í takmörkuðu magni svo það er um að gera að kíkja á þennan.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.