Lancome er ávallt með skemmtilegar nýjungar og fallega liti í förðunarlínum sínum.
Úr línunni ” French Coquette” kemur þessi undurfagri kinnalitur í litnum “La Rose Déco”.
Kinnaliturinn er í púðurformi í fallegri öskju og er í raun markaðsettur sem púður sem hægt er að nota hvar sem er á andlitið. Það er tvískipt, annars vegar í möttum rósrauðum lit sem er eins náttúrulegur og hægt er og veitir andlitinu frísklegan roða.
Hinsvegar er það ljóst og glansandi sem er fullkomið annað hvort blandað með hinum litnum eða til þess að nota efst á kinnbeinin og ennið til að veita ljóma.
Fullkominn róslitaður roði!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.