Ertu þreytt á að vera með þreytta húð?
Skin Ergetic-húðvörurnar eru nýjung frá Biotherm en hér erum við með dásamlega húðlínu sem veita stöðugan raka fyrir þreytta húð sem þarf á næringu að halda.
SkinErgetic serum er orkugefandi serum sem inniheldur 10 sinnum meiri virkni en dagkrem. Serumið á að nota daglega og það lagfærir fimm helstu þreytumerki húðarinnar: Skort á ljóma, ójafnan húðlit, opnar húðholur, ójafna og hrjúfa áferð húðarinnar.
Serumið er frískandi og ilmar nokkuð vel af ljúfum eplakeim. Það er æðislegt að bera það á nýþvegið andlitið á morgnanna, en serumið inniheldur kraft frá brokkolí sem endurnærir og styrkir húð þína. Svo notarðu dagkrem á eftir.
Skin Ergetic er yndisleg húðvörulína sem er tilvalið til að velja fyrir fyrir sumarið – svona til að vekja húðina eftir veturinn. Serumið gerir húðina einnig silkimjúka og hún ilmar dásamlega enda inniheldur serumið blöndu af: eplum, brokkoli, sítrónu, sojaprótein og sykurreyr. Hentar sérstaklega konum sem leita að náttúrulegum húðsnyrtivörum því SkinErgetic er með 99% náttúruleg innihaldsefni og er algjörlega án parabens og litarefna.
Niðurstaða mín er sú að eftir reglubundna notkun á þessu serumi ásamt öðrum vörum úr Biotherm SkinErgetic línunni dregur sjáanlega úr opnum svitaholum, fínum línum og þreytumerkjum og húðin fær á sig fallegt yfirbragð og ljóma.
Meira um vöruna og upplýsingar um verð er að finna HÉR.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.