Karlmenn verða æ ófeimnari við að nota húðvörur enda þornar húðin á þeirra kyni jafn mikið og okkar…
…og því út í hött að halda sig styðja við karlmennskuna með því að bera ekkert á sig. Strákarnir eru semsagt að fatta það að krem eru af hinu góða.
Biotherm er fyrirtæki sem framleiðir slatta af vörum fyrir karlmenn og er með sérstaka línu fyrir þá: Biotherm Homme.
Frá þeim kom nýlega á markaðinn andlitsgel sem þjónar sama tilgangi og rakakrem nema hvað að þetta smýgur mjög hratt inn í húðina og er hvorki glansandi né klístrað.
Þetta kunna drengir vel að meta.
Gelið heitir því karlmannlega nafni Aquapower Absoulte Gel og er allt í senn frískandi, fljótlegt og nærandi. Svo er mild og góð lykt af því sem er ekki yfirgnæfandi og truflar þannig ekki viðkvæmt lyktarskyn mannsins 😉
Smart að gauka þessu að gaurnum þínum ef hann er eins og bökuð kartafla í framan vegna þurrks (og karlmennsku).
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.