Nú hef ég verið að nota Anti Aging línuna frá Bláa Lóninu í tvo mánuði og árangurinn stendur ekki á sér. Húðin öll er alveg silkimjúk og slétt og ekki bólar á því við augnsvæðið að fyrstu línurnar voru byrjaðar að myndast.
Augnkremið inniheldur bl-m2 efnasamsetninguna og dregur úr myndun og sýnileika á fínum línum og hrukkum. Húðin virðist sléttari og vel nærð sem lýsir sér í hraustlegum ljóma.
” Þú breytist aldrei, alltaf jafn ungleg!” er setning sem ég hef heyrt nokkrum sinnum undanfarið og áhyggjurnar sem ég var með yfir fyrstu línunum fyrir stuttu eru farnar, þær voru ekki dýpri en svo að Bláa lóns kremið gat lagað það.
Ég er mjög ánægð með endinguna á kreminu, það kemur í pumpu-glasi og reynsla mín af öðrum kremum er sú að það klárast fljótt þegar það er pumpa en það kemur akkúrat passlegur skammtur úr þessarri og eftir tveggja mánaða notkun tvisvar á dag er þó heilmikið krem eftir!
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.