“In my back pocket” heitir þessi heiti litur.
Appelsínugulur er aðal liturinn í sumar og ég hoppaði hæð mína að finna þennan flotta lit frá OPI.
OPI er gæðamerki, naglalakkið er auðvelt í ásetningu, þekur vel og helst lengi á.
Ég tók tvær umferðir á hendur og tásur og er nú tilbúin að skella mér í sandala og sýna fínu tærnar mínar.
OPI naglalökkin fást í Hagkaup, Debenhams og flestum apótekum og kostar c.a 1990,- kr
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.