Fyrsti Amor Amor ilmurinn frá Cacharel kom út árið 2003, síðan þá hefur Cacharel gefið út nokkrar nýjar útgáfur af ilminum…
…Nýjasta útgáfan er þessi sumar 2011 ávaxtailmur sem að kemur í fallegri bleikri flösku. Þessi ferski ilmur kemur manni klárlega í smá sumarfíling þegar maður úðar honum á sig á morgnanna.
Hann ilmar af ávöxtum granatepla, ananas og greipaldin með keim af blómum appelsínutrés.
Amor Amor ilmirnir hafa alltaf slegið í gegn og ég held að þessi muni gera það líka. Ilmvatnið kemur í takmörkuðu upplagi í krúttlegri 50 ml flösku sem passar vel í töskuna.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.