Þegar kemur að húðvöru þá er Biotherm í algjöru uppáhaldi hjá mér. Það er ekki hægt annað en að elska þessar vörur og ekki er ég svikin af nýja kreminu mínu frá þeim Age fitness elastic.
Þetta er tvískipt krem með virku efni til að draga úr hrukkumyndun öðru megin og rakakrem sem gerir húðina teygjanlegri hinum megin svo blandast þessi efni saman þegar maður pumpar og ber á sig – húðin verður silkimjúk með ferskum ljóma.
Age fitness elastic hentar öllum húðgerðum. Í því er ekki of mikill raki fyrir feita húð og þó passlegur raki fyrir blandaða og þurra húð.
Nú þegar ég er orðin 30+ verð ég að sætta mig við að línur eru að fara myndast og þá er gott að hafa svona frábært krem til að sporna við þeim og miðað við fyrri reynslu mína af Biotherm þá hef ég fulla trú á að þetta virki og ég haldi áfram að vera slétt og fín i mörg ár í viðbót
Biotherm er hágæðavara og fæst í apótekum og víðar og kostar heilar 9.999.-
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.