Það kemst enginn hjá því að fylgjast með einu frægasta glamúr-pari heims David og Victoríu Beckham. Þau eru bæði glæsileg og þekkt fyrir flottan stíl og nú undanfarið hafa þau fengið mikið lof fyrir dömu og herra-ilmina sína.
Sumarið er kannski næstum á enda en ég er týpan sem geng með létta sumarilmi allan ársins hring og mér finnast þessir ilmir mjög góðir. Það kom mér á óvart þar sem bæði ég og kærastinn minn erum mjög kreðsin á ilmi að við fílum ilmina frá Beckham hjónum bæði mjög vel. Ekki amalegt að ilma eins og ofur-parið David og Victoria 😉
Victoria Beckham Signature Summer er blómlegur sumarilmur með ferskan ilm vatnalilju, fjólu og lotus og þokkafullum kjarna vanillu og musk.
David Beckham Signature Summer er karlmannlegur og ferskur ilmur með sítrónu og tangerine ilmi og krydduðum kjarna með saffran, musku og patchuli.
Glösin eru líka flott og handhæg í handtöskuna þína og íþróttatöskuna hans. Mjög vel heppnaðir ilmir og þess virði að prófa hvort sem maður er hrifinn af Beckham hjónunum eða ekki.
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.