Hversu töff er þetta videó frá Uffie?! Mér fannst ég fletta í gegnum Elle, Vogue og I-D tímaritunum blandað í eitthvað stútfull af; tísku, partý, snyrtivörum, 80’s stöffi, kynlífi og gleði…
Uffie er 22 ára ögrandi rapparastelpa / textahöfundur frá Bandaríkjunum sem heitir fullu nafni Anna-Catherine Hartley og sérhæfir sig í synthpop, electronica, hip hop, rappi og danstónlist.
Lagið Pop the Glock er ársgamalt en diskurinn hennar kemur út 2010.
Flott beat og töff stöff frá Uffie!
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.