Tvískiptu sólgleraugun frá Chanel hafa verið að gera allt vitlaust uppá síðkastið.
Selebbar eins og Olsen systurnar og Nicole Richie hafa sést með þau og eru margar konur sem þrá gleraugu sem þessi. Eeeeen í fyrsta lagi kosta þau í kringum 150.000 krónur og það er alls ekki auðvelt að eignast þau því þau eru uppseld allstaðar.
Mörg fyrirtæki hafa því gert eftirhermur af þessum gleraugum. Eftirhermurnar klárarst oftast á mjöög stuttum tíma. Ég fann ein á www.shopnastygal.com á 40$ sem er alls ekki svo slæmt!
Ef þig langar eintak fyrir veturinn mæli ég með því að þú pantir þau strax í dag.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.