Margir hafa eflaust tekið eftir nýlegum vinsældum söngvarans Gotye og lagsins hans ‘Somebody that I used to know’ sem hefur verið mjög áberandi undanfarið…
…En eitt af því fyrsta sem ég tók eftir þegar ég horfði á myndbandið við lagið var að söngvarinn, sem heitir víst réttu nafni Wouter De Backer, er frekar líkur íslenska leikaranum Jörundi Ragnarssyni. Jörundur leikur eitt aðalhlutverkið í nýju þáttunum ‘Heimsendir‘ sem eru nú í sýningu á Stöð 2 og þar skartar hann einmitt svipaðri hárgreiðslu og Gotye.
Fyrir þá sem ekki hafa séð myndbandið við lagið ‘Somebody that I used to know’ þá kemur það hér:
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=8UVNT4wvIGY[/youtube]
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.