Það var mikið um dýrðir í Útilíf á fimmtudaginn þegar Under Armour opnaði nýja deild í versluninni en um 300 manns lögðu leið sína í Kringluna þar sem stemmningin var góð.
Dj. Atli Kanill sá til þess að gestir væru í góðu stuði og samlokur og safar frá Joe & the Juice runnu vel í mannskapinn.
Auðvitað voru brjáluð opnunartilboð í gangi en vinsælustu buxurnar frá Under Armour, Authentic Tights, eru 7.990 til þriðjudagsins 8. september. Vinsælustu íþróttatopparnir eru á 3.990 og margt fleira er hægt að næla sér í með góðum afslætti svo það er um að gera að drífa sig á morgun!
Á fimmtudaginn var Gisele Bundchen jafnframt kynnt sem nýtt andlit í herferð Under Armour I Will What I Want og eru allir sammála um að hún taki sig einstaklega vel út.
En aftur að opnunarpartýinu, eins og fyrr segir var gersamlega troðið út að dyrum en meðal gesta voru útsendarar Pjattsins þær Margrét og Fanney, Ragnhildur Steinunn sjónvarpskona, Þórunn Ívars tískubloggari og fleiri unnendur Under Armour.
Smelltu til að stækka myndirnar…
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.