Þetta er tilvalið fyrir konur og karla sem vilja vera með í mottumars en geta ekki, eða langar ekki, til að safna heilu yfirvaraskeggi.
Sólgleraugun fást í verslunum Urban Outfitters sem eru bæði austan hafs og vestan og kosta litla 8 dali eða rúmlega 1000 krónur.
Þú getur líka keypt þér plástra sem eru með yfirvaraskeggi á… (tilvalið fyrir menn sem eru gjarnir á að skera sig í efrivörina við raktstur) en svo er líka hægt að kaupa úrval af flottum mottum í t.d. Tiger eða Hókus Pókus á Laugarveginum.
Í Urban Outfitters er líka hægt að fá þetta fallega sett sem inniheldur segulorð á ísskápinn. Með þeim geturðu sett saman ljóð er fagna lífstíl þeirra sem eru með mottur.
Spes? Nei nei.
Kíktu HÉR til að kjósa flottustu motturnar í Mottumars. Til stendur að safna 35 milljónum en við erum þegar komin upp í tæpar 15. Allir saman nú!
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.