Það virðist enginn vita almennilega hvað á að kalla þetta nýja trend þannig að þau vestanhafs hafa bara kallað þetta ‘mid-finger ring’ til þessa…
…Trendið fellst í því að vera með litla hringi á miðjum puttanum! Það er spurning hvort að þetta sé óþægilegt en þetta er allavega flott að mínu mati. Ég hef ekki rekist á svona hringi í verslunum hér heima en það styttist örugglega í það þar sem þetta er alltaf að verða meira og meira áberandi hjá ‘selebbum’ og bloggurum um allan heim.
Mega flott!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.