Nú fer sumarið senn að koma og þá má fara henda smá lit í fataskápinn!
Litaðar gallabuxur eru það allra heitasta þetta sumarið! Í öllum regnbogans litum og þá helst pastel litir sem eru einnig mjög heitir í sumar!
Íslenskar konur eru alltof fastar í svarta litnum en það skemmtilega við þetta trend er að þú getur notað öll svörtu fötin þín með lituðum gallabuxum! Það getur oft verið erfitt að blanda saman of mörgum litum og er því flott að vera í t.d. ljósbláum buxum, svartri peysu og svörtum skóm.
Litaðar buxur fást í öllum helstu verslunum t.d. Topshop, Warehouse, Saints og Oasis.
____________________________________________________________
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.