Hvítir skór verða það allra heitasta í sumar, og í raun allt hvítt helst frá toppi til táar!
Hvítir skór geta poppað upp einfalt átfitt og gert það sumarlegt á augabragði.
Ég þrái flotta “chunky” háhælaða eða flatforms fyrir sumarið!
Skórnir á myndinni hér fyrir ofan eru frá Miista og heita meira að segja STELLA!
Þeir öskruðu á mig inná solestruck. Ég vill meina að þetta séu örlögin! – Er það ekki?
Strigaskór, flatforms, pinnahælar, 90’s boots og allt þar á milli! – HVÍTT HVÍTT HVÍTT! Ég vil hvíta skó, hvíta skó.
_______________________________________________________
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.