Ég vissi nú ekki alveg hvernig ég átti að bregðast við þegar ég sá þetta trend. Fékk smá Buffalo-hryllings tilfinningu. Hver man ekki eftir Buffalo skónum?
Þetta trend venst samt ósköp vel og ég keypti mér par um daginn. Reyndar með mjög litlum platform en hann sést þó alveg.
Skór sem þessir hafa verið áberandi á sýningarpöllum uppá síðkastið og verða mjög heitir í vor og sumar. Þeir munu jafnvel taka við af fyllta hælnum sem hefur tröllriðið öllu undanfarna mánuði.
Ég hef ekki séð mikið af þessum skóm hér á landi en ég keypti mína allavega í Bianco og ég sá einnig svipaða bæði í GS skóm og Skór.is
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.