Bomber jakkar hafa verið áberandi uppá síðkastið hjá báðum kynum.
Þeir koma í öllum útgáfum; satín með ísaum, gallaefni, jersey og jafnvel leður. Mynstur eru sérstaklega áberandi, ég keypti einmitt einn mjög speisaðann á fatamarkaði fyrir nokkrum árum. Hann verður eflaust ofnotaður í sumar. …og hversu hot eru strákar í bomber jökkum?
Namm!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.