Beanie húfurnar svokölluðu hafa verið mjög vinsælar í svolítinn tíma og halda því áfram í sumar. Allar stelpur verða ósjálfrátt töffarar með flotta húfu.
Þær gera lúkkið meira tjillað og kúl.
Nú fussa einhverjir: NEON húfur verða mjög heitar í sumar! – ég splæsti í eina neon gula um daginn, hef ekki enn notað hana því kærastinn minn neitar að láta sjá sig með mér með húfuna.
Ég ætla nú samt að ofnota hana í sumar, því hún er kúl! Það er bara þannig.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.