Bakpokar eru nýjasta trendið – helst litlir leðurbakpokar.
Bakpokar hafa verið áberandi á tískupöllum hjá frægustu hönnuðum í heimi t.d. Louis Vuitton og Alexander Wang. Mér finnst þetta trend voða krúttlegt og flott!
Bakpokar eru líka rosalega þægilegir og miklu betri fyrir axlirnar en hliðartöskunar sem við berum alla daga.
Hef ekki séð mjög mikið af flottum bakpokum hér á Íslandi en sá nokkra flotta í Spútnik og ég keypti einn töff í Kolaportinu. En svo er auðvitað alltaf hægt að finna á netinu.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.