Leikkonan Tori Spelling lætur allt flakka í nýútkominni bók sinni “Spelling it like it is” en þar segir hún meðal annars frá því þegar fjölmiðlafulltrúinn hennar lét hana ljúga fyrir forsíðuviðtal.
Tori birtist á forsíðu US Weekly í apríl á þessu ári, klædd í bikiní með son sinn Flynn sem hún eignaðist í ágúst á síðasta ári. Í viðtali við blaðið segir Tori að hún hafi misst tuttugu kíló á mjög heilbrigðan hátt. Hún hafi stundað léttar æfingar ásamt því að borða mikið af fiski, hummus og súpum.
Sannleikurinn var fjarri frá þessum lygum en Tori viðurkennir í bókinni að hún hafi einfaldlega svelt sig og lifað á loftinu! Fjölmiðlafulltrúa hennar fannst það ekki alveg hljóma nógu vel fyrir almenning og ákvað því að láta Tori ljúga “aðeins” svo að fólk færi nú ekki að dæma hana og skjóta hana niður með niðrandi ummælum og gagnrýni. Tori segir einnig að hún hreyfi sig ekki mikið yfir höfuð, henni finnist það ekki gaman og hafi þar að auki ekki tíma til þess enda nóg að gera með fjögur börn, eiginmann og frama.
Tori átti mjög erfiða meðgöngu með Flynn og þurfti að vera rúmliggjandi nánast allan tímann þar sem hún átti í hættu að missa barnið ef hún hreyfði sig yfir höfuð. Fyrir átti Tori þrjú börn og tók þetta mikið á fjölskylduna og börnin hennar.
Það er alveg pottþétt að fleiri konur í Hollywood stunda þessa aðferð og svelta sig til þess að komast í form og vera grannar eftir barnsburð, hvað heldur þú?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig