Margar Hollywood stjörnur eiga hrós skilið fyrir flott útlit á árinu allt frá náttúrulegri fegurð upp í litagleði. Hér er listi yfir þær sem eru í uppáhaldi…
Rihanna: Hún er óhrædd við að prufa allt og leika sér með bæði förðun og hár út í hið óendanlega. Meirihluta ársins hefur hún skartað eldrauðu hári og krullum en svo hefur hún líka breytt til og farið yfir í náttúrulegri liti og líka ljóst. Varðandi andlitið að þá er hún alveg með það á hreinu hvenær hún á að leika sér með farða og hvenær hún á að leyfa húðinni að hvíla sig og setja á sig flottan varalit í staðinn!
Diane Kruger: Án efa ein fegursta og fágaðasta kona dagsins í dag. Náttúrulegir lokkar með strípum, geislandi heilbrigða húð og förðun í lágmarki en nær samt alltaf að heilla mann upp úr skónum.
Kelly Rowland: X Factor dómarinn og fyrrum Destiny’s Child pían veit alveg hvað hún syngur, enda sést hún varla án þess að vera flott og vel til höfð. Förðunin er alltaf flott og oft leikur hún sér með liti og nýjar hárgreiðslur.
Emma Stone: Orðin stórglæsileg ung kona, enda ekki við öðru að búast þar sem hún lék stelpu sem vann hug og hjarta Ryan Gosling í Crazy Stupid Love. Hún er klárlega búin að finna sinn stíl og oftast með flottan eyeliner, rauðleitan hárlit og fölbleikar varir. Og það skemmir ekki að hún er með húmorinn í lagi!
Blake Lively: Þessi leikkona úr Gossip Girl er eiginlega óþolandi fullkomin. Með þykkt og glansandi hár, gallalausa húð og sætt bros. Hún er líka fyrirmynd fyrir stúlkur á öllum aldri þar sem að hún leyfir sér að halda í kvenlegan vöxt þó hún sé grönn. Hún er ótrúlega smart og notar yfirleitt svipaðan stíl á hár og förðun sem fer henni virkilega vel.
Kim Kardashian: Þrátt fyrir strembið ár verður seint tekið af henni að hún er alltaf glamúrus með flott make-up, sinn kvenlega vöxt og fatasmekk. Ég hef aldrei séð Kim Kardashian með ljótuna. Aldrei.
Emma Watson og Michelle Williams: Konur sem hafði langað að klippa á sér hárið tóku gleði sína þegar að þessar tvær komu með þetta trend til baka. Þær sýna að maður er ekkert minna kynþokkafullur og kvenlegur með stutta lokka, svo eru þær bara ótrúlega fínar og sætar!
Rosie Huntington- Whiteley: Victoria’s Secret fyrirsætan flotta sýndi á sér nýja hlið í Transformers myndinni sem kom út á árinu. Hún hefur allan pakkann og er alltaf flott förðuð með geislandi húð og sítt, kynþokkafullt hár.
Katy Perry: Hefur sennilega skipt um lúkk oftar en Rihanna og það er ekki beinlínis auðvelt verk. Engin sem ég veit um gæti púllað svarbrúnt, kastaníubrúnt, dökkbleikt og ljósbleikt hár allt á sama árinu og gert það vel. Hún er líka alltaf flott máluð!
Ég gæti eytt endalausum tíma í að kíkja í gegnum myndir af þessum dömum og fá hugmyndir um allskonar farðanir og hár eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan. Þær eru einfaldlega með þetta!
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com