Það er fátt betra en vel lyktandi karlmaður, nema ef vera skyldi vel lyktandi, vel gefinn og jafnframt kurteis karlmaður…
En ef við tölum bara um fyrsta atriðið, sem er vel lyktandi karlmaður… þá er ekki seinna vænna að rifja bestu ilmina upp þar sem jólin nálgast óðfluga og rakspírar alltaf vinsæl gjöf til strákanna, hvort sem um er að ræða afa, pabba, bróður, maka eða son.
Eftirfarandi listi er samantekt af mörgum sambærilegum listum þar sem sömu vörumerkin bar alltaf á góma. Semsagt, úrvalsilmir og eftirlæti fagmanna víða um heim.
Topp 10 vinsælustu herrailmirnir á markaðnum:
- Obsession by Calvin Klein *Klassískur og kynþokkafullur ilmur fyrir alvöru karlmenn á öllum aldri.
- Hugo by Hugo Boss *Ferskur og sexí fyrir unga uppann.
- Armani He by Armani *Djúpur og dularfullur fyrir rokkarann.
- Le Male by Jean Paul Gaultier *Hressandi og góður fyrir partýgaura á öllum aldri.
- JOOP! By Joop *Gengur einnig undir nafninu „Pjásutryllirinn“…
- Eternity by Calvin Klein *Ljúfur og karlmannlegur fyrir rólega heimilisfaðirinn.
- Aqua di Gio by Giorgio Armani *Sporty og passar öllum, fyrir íþróttamanninn.
- Cool Water by Davidoff *Hnakkalyktin góða;)
- The One Dolce & Gabbana *Töff bóhemlykt fyrir 101 manninn.
- Burberry Touch by Burberry *Fágaður og seiðandi fyrir menntamanninn.
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.