Ég hef alltaf verið mikill kvikmyndaunnandi, elska bara góðar bíómyndir, góðar sögur og góða karaktera og þá sérstaklega ef flottar kvenpersónur kóróna góða mynd.
Hér eru tíu frábærar píur í talnaröð sem er ekki hoggin í stein. Þetta eru líka allt alveg hrikalega góðar myndir svo ef þú hefur ekki séð einhverjar þeirra þá skaltu gera það hið fyrsta. 100% meðmæli.
10. Louise Sawyer
Susan Sarandon lék þessa dömu í myndinni Thelma And Louise um konurnar sem fengu nóg og stungu af. Nóg af karlrembu, nóg af lélegum samböndum, nóg af leiðindum. Þær bara stungu af, fóru á road trip, lentu í veseni og tóku afleiðingunum. Ógleymanleg og æðisleg mynd.
Louise: I'm in deep shit; Deep Shit, Arkansas.
9. Elvira Hancock
Michelle Pfeiffer lék konuna hans Tony Montana í myndinni Scarface. Hann alveg sjúklega firrtur og galinn kókaínsali og stórglæpon en hún ó svo svöl og chic og lét engann vaða yfir sig. Reyndar var hún í frekar miklu rugli þegar kom að fíkninni en fataskápurinn hennar. Maður lifandi! Kíktu hér á samantekt sem ég gerði lúkkið á Elviru í Scarface.
So do you want to dance, Frank, or do you want to sit there and have a heart attack?
Elvira Hancoc
8. The Bride í Kill Bill
Brúðurin er einn mesti nagli kvikmyndasögunnar ever. Dirty Harry var ekki meiri nagli. Allir karakterar Bruce Willis til samans munu aldrei ná að toppa þennan nagla. Harðari en allt. Allar mæður ættu að horfa á þessa mynd með dætrum sínum þegar þær ná sirka sjö ára aldri (grín, samt ekki).
It was not my intention to do this in front of you. For that I’m sorry. But you can take my word for it, your mother had it comin’. When you grow up, if you still feel raw about it, I’ll be waiting.
The Bride
7. Megan í Bridesmaids
Svo ótrúlega mikill snillingur. Elska hana. Frískandi kvenpersóna á hvíta tjaldinu, fleiri svona stelpur í bíómyndir takk. Við þekkjum flestar svona týpu (smá Gyða Sól) svo hversvegna vantar þær í bíó?
Female fight club. We grease up, we pull in. Lillian doesn’t know so it’s ‘Surprise, we’re going to fight!’ We beat the shit out of her.
Megan
6. Juno
Sextán ára unglingurinn sem varð ólétt og tók málin í eigin hendur. Æðislegur karakter sem hafði mikil áhrif. Núna er leikkonan hán, semsé kynlaus held ég, og það er hið besta mál. Áfram hán!
5. Lisbeth Salander
Þessi stelpa er fyrir löngu orðin að einhverskonar táknmynd hjá okkur. Táknmynd fyrir konur sem hata karla sem hata konur. Konur sem láta ekki bjóða sér, né öðrum konum, eitthvað rugl. Stig Larson sagði víst einhverntíma í viðtali að hann hefði hugsað um Línu Langsokk þegar hann skapaði Lisbeth. Hvað hún væri að gera sem fullorðin, hvernig hún hefði orðið. Noomi Rapace rúllaði þessu upp.
Lisbeth Salander: [after having slept together the night before] I like working with you.
Mikael Blomkvist: I like working with you too.
/
4. Bonnie Parker
Bonnie Parker og Clyde Barrow voru eitt alræmdasta par síðustu aldar. Algjörir villingar. Bankaræningjar. Faye Dunaway hafði mikil áhrif á mig þegar ég sá þessa mynd sem krakki. Mér fannst hún fallegasta kona heims, fötin svo flott og þetta frjálsa líf þeirra mjög spennandi þó það hafi síðan endað illa.
Bonnie Parker: [to Clyde] You're just like your brother. Ignorant, uneducated hillbilly, except the only special thing about you is your peculiar ideas about love-making, which is no love-making at all.
3. Erin Brockovich
Myndin um Erin Brockovich er byggð á sönnum atburðum en þessi Erin var sannkallað kjarnakvendi. Einstæð móðir sem gerðist aðstoðarkona á lögmannsstofu og réðist í kjölfarið á stórt orkufyrirtæki sem eitraði neysluvatn fyrir fullt af fólki. Henni tókst ætlunarverk sitt og felldi fyrirtækið en myndin fjallar líka um baráttu hennar fyrir því að fá að vera hún sjálf, – kynbomba, einstæð mamma, gáfumenni, skvísa og nagli á sama tíma.
Theresa Dallavale: Okay, look, I think we got off on the wrong foot here...
Erin Brockovich: That's all you got, lady. Two wrong feet in fucking ugly shoes.
2. Mæja
Ég stjórna þessu með hugarorkunni
Mæja
1. Maude
Engin kvenpersóna í bíómynd hefur haft jafn mikil áhrif á mig og Maude í myndinni um vinina þau Harold og Maude. Þetta er uppáhalds myndin og uppáhalds kvenpersónan by far. Engin slær Maude við. Algerlega til fyrirmyndar í alla staði. Jóda heimsins.
Harold: You sure have a way with people.
Maude: Well, they're my species!
Takk fyrir mig! Það væri frábært ef þú myndir deila með mér þínum uppáhalds kvenpersónum úr bíómyndum í kommenti 🙂
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.