Hin stórgóða og skemmtilega hljómsveit Feldberg var að gefa frá sér æðislegt myndband við lagið “Don´t be a stranger” sem ég verð að deila með ykkur.
Jói Kjartans tók myndirnar í leikstjórn Ásgríms Más Friðrikssonar (AsIceland fatahönnuður, stílisti m.m.) og Óla Hjartar Ólafssonar. Myndbandið var svo klippt af snillingunum Styrkár Snorrason og Eyrúnu Helga.
Ísak farðaði og Rósa Ísfeld, Erna Bergman og Hildur Hermanns sjá um gleðina og fallegu fötin.
HÉR má sjá glitta í öll nýjustu herlegheitin frá Kron Kron, ÝR ofl og sokkabuxurnar eru frá Oroblu.
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.