Hver man ekki eftir Danny Zuko og Sandy í myndinni Grease frá árinu 1978?! Myndin sem er algjör klassík er ein af þeim allra þekktustu í heiminum enda alveg yndisleg.
Nú hafa John Travolta og Olivia Newton-John sameinast aftur og gert jólaplötu ásamt Baröru Streisand, James Taylor, Tony Bennett og Kenny G. Platan heitir “This Christmas” og allur ágóði af henni rennur óskertur til góðgerðamála.
Myndbandið fyrir lagið “I Think You Might Like It” er í sama anda og lokalagið í Grease myndinni góðu “You’re the One That I Want”. Í myndbandinu koma einnig fram Kelly Preston eiginkona Johns og 12 ára dóttir þeirra hún Ella Bleu og Benjamín litli sem er 2 ára en Benjamín tekur ferlega krúttlega danssveiflu í myndbandinu.
Það er ekki laust við það að maður fá smá Grease fiðring þegar horft er á þetta sæta myndband, sjáið líka hvað þau eru ennþá ótrúlega falleg og flott..Bara algjört æði!
[youtube]http://youtu.be/iGNIDXUaVts[/youtube]
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.