Var að uppgötva þessa stúlku sem er frá New York og heitir réttu nafni Lizzy Grant.
Lizzy er söng -og lagahöfundur en sviðsnafn hennar er “Lana Del Rey”. Lana Del Rey er með með kraftmikla en samt mjúka rödd, hún er fersk týpa og útlit hennar er tímalaust og nokkuð töff blanda af nokkurs konar 70’s og nútímalegum stíl, einskonar blanda af Juliu Roberts, Brigitte Bardot og Elite fyrirsætu. Tel að þessi fagra snót sé komin til að vera í poppbransanum.
Myndbandið er nokkuð svalt og rödd hennar og tónlistin alveg þess virði að hlusta á:
[vimeo]http://vimeo.com/27668179[/vimeo]
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.