Janelle Monáe er 26 ára gömul stúlka frá Kansas City í Bandaríkjunum.
Hún er með einstakan fatastíl og hárgreiðslur. Stíll hennar í fötum einkennist af buxum, skyrtu og slaufu og flottum skóm – mjög retró.
Hún gaf út sína fyrstu sólóplötu í fyrra og nefnist hún The ArchAndroid (Suites II and III) en platan er svokölluð “concept” plata, hún fékk mikið lof fyrir hana og var meðal annars tilnefnd til Grammy verðlauna. Nýjasta verkefni hennar, sem er að slá öll met í vinsældum, er samstarf við hljómsveitina Fun og lagið We Are Young en hér fyrir neðan má sjá myndbandið.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=Sv6dMFF_yts&ob=av3e[/youtube]
Mér finnst þessi stúlka mjög smart í klæðaburði og hárgreiðslan hennar er mjög töff en snúðurinn eða “snúðkamburinn” er orðinn svokallað “trademark” hennar.
Hér að neðan má sjá myndir af þessum flotta tónlistarmanni sem vert er að fylgjast með í framtíðinni:
Heimasíða hennar er: www.jmonae.com
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig