Það verður núna á sunnudaginn 13. maí sem að Harpa mun bjóða þér og þínum á sérstaka Undiröldu tónleika í tilefni afmælis Hörpu…
…Tónleikarnir fara fram í Silfurbergi og eru frá 17:00-20:30. Böndin sem stíga á stokk eru;
TILBURY-KIMONO- SIN FANG – SYKUR – JÓNAS SIG OG RITVÉLAR FRAMTÍÐARINNAR- ÞÓRUNN ANTONÍA OG DAVÍÐ BERNDSEN
Þá er bara um að gera að taka sunnudaginn frá og kíkja í Hörpu. Nánari afmælisdagskrá Hörpu er að finna á www.harpa.is.
Allir velkominir og aðgangur er ókeypis!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.