Ellie Goulding er 26 ára bresk stelpa sem er virkilega að slá í gegn um þessar mundir enda er stelpan með ótrúlega rödd!
Svo er hún ótrúlega sæt, ekki þessi týpíska Hollywood glamúrpía. Hún er oftast náttúrulega förðuð og mjög hlédræg. Þó er hún stundum með bleikt hár. Flipp-kisi.
Ég er gjörsamlega ástfangin af tónlistinni hennar og það er heimurinn líka! – Ellie söng m.a í brúðkaupi Williams og Kate. Ekki slæmt það!
Hér má sjá hana syngja órafmagnaða útgáfu af laginu lights. Ótrúlegt hvað hún er góð!
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=yTyL7p0E0Fk[/youtube]
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.