Faðir hnakkamenningarinnar á Íslandi, Egill Einarsson, áður þekktur sem Gillz (en gengur jafnframt undir listamannsnafninu DJ Muscleboy) sendi nýverið frá sér lag sem ber heitið PUMP.
Þetta er annað lagið sem DJ Musclboy gefur út á árinu en lagið Louder var átta vikur á toppnum á Íslenska listanum eftir að það kom út í mars.
Lagið er ekta ‘hnakkatónlist’ sem heyra má í spinningtímum en það var frumflutt á tónleikum David Guetta á 17. júní eins og sjá má í sjálfu myndbandinu.
Tónlistarmaðurinn á jafnframt von á barni með unnustu sinni Gurrý Jónsdóttur en frumburðurinn mun líta dagsins ljós í næsta mánuði. Nóg að gerast.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=vD79miUXZXc#t=126[/youtube]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.