Sumir láta ekki tækifæri til pínu frægðar úr greipum sleppa og þetta á við um þennan stórkostlega dansara sem gefur allt sem hann á í þessu myndbandi.
Videoið var tekið upp árið 1975 og hér má sjá hina glæsilegu Donnu syngja stunusyngja lagið með hóp kátra dansara fyrir aftan sig.
Diskósporin eru fáránlega fyndin og sérstaklega ljóshærði strákurinn sem ætlar sko að vinna fyrir kaupinu sínu. Dansa fyrir allann peninginn, já — nota þetta móment til að stimpla sig á spjöld mannkynssögunnar með diskókippum! Þarna er tjáning í hverjum svitadropa. Já gefa sig í þetta! Koma svo!
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.