Tom Cruise er í leit að eiginkonu og barni, samkvæmt Life & Style tímritinu.
„Hann hefur afrekað nánast allt sem hann hefur ætlað sér í sínu starfi en til að fullnægja sér persónulega vill hann nýja eiginkonu og nýtt barn,“ sagði heimildarmaður við tímaritið.
„Til að draumurinn rætist hefur hann ákveðið að taka sér frí frá vinnu eftir að tökum úr síðustu mynd hans lýkur.“
„Tom hefur beðið vini sína, fjölskyldu og meðlimi Vísindakirkjunnar, um að leita að Frú Cruise númer fjögur og hann vill hafa hraðan á.“
„Ef allt gengur að óskum ætlar hann að byrja að plana brúðkaupið í lok sumars.“
Heimildamaður náinn Tom sagði hinsvegar: „Þetta er bull og vitleysa. Þessi saga var búin til.“
Spurning hvað er satt og logið í þessu?
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.