Leikarinn Tom Cruise hefur ekki mikið talað um einkalíf sitt eftir að Katie Holmes (34) sótti um skilnað við hann á síðasta ári en Tom segir að Katie hafi gefist upp vegna Vísindakirkjunnar.
Þetta kom fram í réttarsal en Cruise kærði fjölmiðlarisann Bauer sem á tímaritið In Touch en það sagði á forsíðunni sinni að hann hefði yfirgefið Suri eftir að þau Katie skildu.
Tom var spurður út í hvort Katie hefði sótt um skilnað við hann vegna Vísindakirkjunnar og neitaði hann að svara í fyrstu en þegar lögfræðingarnir hans ráðlögðu honum að segja satt þá sagði hann að Katie vildi forða Suri frá Vísindakirkjunni enda var hún alltaf á móti trúnni.
Suri tilheyrir ekki lengur Vísindatrúnni en þau sem segja sig frá kirkjunni og trúnni fá ekki að koma aftur, þau eru útskúfuð frá Vísindakirkjusamfélaginu og fjölskyldan á í raun og veru að yfirgefa aðilann líka en Tom neitar að yfirgefa Suri vegna þess að það var Katie sem tók hana frá kirkjunni en ekki hann.
Tom mun þó ekki gefast upp á því að fá Suri aftur í Vísindakirkjuna en þarf hugsanlega að bíða í þó nokkur ár í viðbót eða þar til hún getur sjálf tekið ákvörðun um hvort hún vilji tilheyra þessari trú eður ei.
Greyið Suri litla er hundelt af ljósmyndurum hvert sem hún fer og fær aldrei frið en hvort hún mun tilheyra Vísindakirkjunni í framtíðinni er ekki hægt að segja til um og spurning hvort foreldrið hefur meiri áhrif í ákvarðanatöku hennar. Þetta kemur í ljós eftir nokkur ár.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig