Tom Cruise er enn ástfanginn af Katie Holmes og líður illa yfir því að hún sé búin að finna sér nýjan kærasta.
Eins og frægt er orðið skildi parið í júní síðastliðnum eftir sex ára hjónaband en hún bað um skilnað meðan hann var staddur hérlendis við tökur á myndinni Oblivion.
Katie hefur nú jafnað sig talsvert betur en Tom en nýjustu fregnir herma að hún sé byrjuð að slá sér upp með leikaranum Luke Kirby sem leikur á móti henni í myndinni Mania Days.
Heimildarmenn þar vestra segja að Katie hafi aldrei litið jafn vel út og hún gerir núna. “… og það minnir Tom á stelpuna sem hann varð ástfanginn af. Hann virkilega elskaði hana og gerir enn. Í raun teljum við að hann myndi pottþétt vilja hana aftur ef hann gæti”.
Tom ku ekki vera kominn yfir skilnaðinn og saknar enn Katie sem fékk fulla forsjá yfir dóttur þeirra Suri sem er nú sjö ára.
Í viðtali við tímaritið OK sagði heimildarmaðurinn einnig að sú staðreynd að Katie væri bæði komin með fulla forsjá yfir dóttur þeirra OG nýjan kærasta, myndi valda Tom miklu hugarangri:
“Þegar hann frétti af því að hún væri komin í nýtt samband og væri á fullu að forðast ljósmyndara og umtal um þetta varð hann mjög óhamingjusamur. Vandinn er jú sá að hann á alltaf eftir að elska hana”
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.