Ég verð nú reyndar að viðurkenna að ég hlusta ekkert á tónlistina hennar Ritu en stelpan kann að klæða sig!
Rita Ora á uppruna sinn að rekja til Kosovo en hefur búið í London alla sína ævi. Hún var uppgvötuð af Jay-Z fyrir nokkrum árum og hefur verið að gera það gott í tónlistinni og ekki síst tískuheiminum.
Hún er ótrúlega svöl með ljósa krullaða hárið og flippaðan fatasmekk. Svo er hún algjört krútt líka!
Hún er kærasta Rob Kardashian, bróður Kardashian systra.
Það hefur nú sennilega hjálpað Ritu eitthvað við að koma sér á framfæri. Þannig virkar bransinn!
___________________________________________
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.