Mér finnst mjög flott þegar strákar, og reyndar stelpur líka, eru í flottum stuttermabolum.
Það er einfalt að skapa sinn eigin stuttermabol. Allt sem til þarf er hvítur ódýr bolur.
Síðan þarf einn textíl-tússpenna og styrka hönd til að draga upp sniðug form á bolinn.
Hugleiki Dagssyni ferst þetta mjög vel úr hendi… þú getur prófað líka.
Guðrún Gunnarsdóttir er menntuð í viðskiptafræði en hefur lengst af starfað í tískubransanum. Nú rekur hún heildsölu ásamt eiginmanni sínum. Hún er sérlegur unnandi Parísarborgar en þangað fer hún nokkrum sinnum á hverju ári. Guðrún er hrútur, fædd 1976.