Hvort sem þér líkar betur eða verr þá þykir ekki lengur hallærislegt að klæðast sokkum við háu hælana heldur er þetta bara nokkuð töff.
Háir sokkar við háa hæla hefur verið áberandi á tískupöllunum fyrir haust -og vetur 2010 hjá hátískuhúsunum.
Þannig að nú er um að gera að fjárfesta í fallegum sokkapörum og dressa upp hælana.
Það er klárt mál að við dömurnar þurfum ekki að vera með kaldar tær í vetur!
Smelltu til að skoða og stækka…
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.