Við elskum allar ASOS. Þar er daglega hægt að finna eins og tíu flíkur sem manni langar að eignast.
En eins og gengur og gerist gerast tískuslysin á ótrúlegustu stöðum.
Ég var á mínu reglulega netrölti á ASOS í leit að hinum fullkomna jólakjól og ég sá svo mikið af hræðilegum flíkum að ég hreinlega hló upphátt ein með sjálfri mér.
Ég bara varð að sýna ykkur nokkrar…
(Ath að smekkurinn endurspeglar aðeins minn smekk og ég biðst fyrirfram afsökunar ef þessi færsla fer fyrir brjóstið á einhverjum ;))
Ég elska samt ennþá ASOS þrátt fyrir þessar fyndnu flíkur, þær gera kjólaleitina bara skemmtilegri! 🙂
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.