H&M eru að fara að frumsýna Vor 2012 línuna sína, hérna er smá “preview”…
Mér finnst alltaf svo ótrúlega gaman að kíkja í H&M, þar er hægt að fá föt fyrir alla fjölskylduna á góðu verði. Ekki skemmir hönnunin fyrir. Þeir eru fljótir að koma með nýjungar og fá nýja og skemmtilega hönnuði í lið með sér. Halda tískunni frískri og skemmtilegri.
Ég rakst á þessar myndir af nýju sumarlínunni þeirra og stóðst ekki mátið að hugsa til næsta sumars á meðan frostið og vindurinn úti barði á gluggana hjá mér.
Sjáið litina og sérstaklega sólgleraugun, þau eru alveg ótrúlega flott!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.