Árleg undirfatasýning hjá Victoria’s Secret fór fram í vikunni og það er óhætt að segja að englarnir hafi verið gullfallegir þetta árið.
Hasarkropparnir sem sýna hjá VS eru í svakalegu formi og eru jafnvel eldsnöggar að koma sér í form stuttu eftir barnsburð til þess að getað tekið þátt í þessari sýningu en sýningin er hápunktur ársins hjá Victoria’s Secret undirfataframleiðandanum.
Adriana Lima og Miranda Kerr tóku að sjálfsögðu þátt í sýningunni og voru flottari en nokkru sinni fyrr.
Rihanna, Justin Bieber og Bruno Mars voru á meðal söngvara sem komu fram á meðan súpermódelin sýndu undirfötin við góðar móttökur og þegar Rihanna flutti lagið sitt Diamonds varð allt vitlaust í salnum.
Hér að neðan er stórt myndasafn af flottum dömum í æðislegum nærfötum!
__________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig