Þegar ég var yngri var bleikur algjörlega uppáhalds liturinn minn eins og hjá svo mörgum ungum stelpum. Ég er ennþá svolítið mikið fyrir bleikt!
Sumarlegur og stelpulegur litur, sérstaklega í sumar!
Uppáhalds naglalökkin mín þessa stundina eru einmitt bleik og er frá OPI. Eitt er Barbí bleikt, matt og heitir If you moust you moust og hitt er ljósbleikt, fullt af glimmeri og litlum hjörtum!
Krúttlegasta naglalakk sem ég hef séð, það heitir…
Nothin’ mousie ’bout it!
Bæði naglalökkin eru úr línu sem er innblásin af Mínu mús. Skemmtilegir innblástrar hjá OPI alltaf! Þú getur lesið hér meira um þessa Mínu seríu sem Rannveig skrifaði um daginn.
Elska þessi naglalökk, og sérstaklega að setja glimmerlakkið yfir það matta. Kemur mjög vel út. Ég er mjög hrifin af OPI naglalökkum enda standa þau alltaf við sitt.
Hér er fullt fínt og bleikt….
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.