Nú er Óskarinn 2012 í fullum gangi!
Stjörnurnar eru nú búnar að ganga inn rauða dregilinn þannig að allir kjólasjúklingar þarna úti eru búnir að sjá og skoða þá flottustu….og ljótustu.
…Hér fyrir neðan er brot af því besta og versta. Persónulega finnst mér Milla Jovovich vera að rúlla þessu upp með sínum Elie Saab kjól og sama má segja um Michelle Williams en hún er í kjól frá Louis Vuitton.
Á meðan er greyið Jennifer Lopez að gera upp á bak í sínum kjól (kannski alveg fínn kjóll þannig séð, en er ekki að ‘lúkka’ á henni).
Kíktu á myndirnar fyrir neðan og sjáðu sjálf…
_________________________________________________________________________________
Myndir fengnar að láni HÉÐAN.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.