Ég er ekki frá því að það er komin smá vorfílingur í mann og þá er fátt skemmtilegra en að sitja á kaffihúsi með góðri vinkonu í skemmilegu spjalli…
…gjóa svo af og til augunum og fylgjast með mannlífinu út um gluggann. Mér finnst t.d. alltaf sérstaklega gaman að fylgjast með stíl fólks og er algerlega óð í kápur, jakka, töskur og fallega skó… Mig langar í, mig langar í, mig langar í alla þessa skó…
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.